Við hjá Artrúnu trúum því að lífið sé stöðugt ferðalag lærdóms og sköpunar. Nafnið okkar, Lifum & lærum, endurspeglar þá sannfæringu að við séum aldrei fullmótuð; við erum eins og leirinn á rennibekknum, í sífelldri þróun.

 

Jafnvægi í mótun: Á milli kyrrðar og krafts

Lífið krefst þess oft að við séum á fleygiferð, en hjá Artrúnu leitum við leiða til að finna kyrrðina í miðjum storminum. Við teljum að vellíðan sé ekki áfangastaður, heldur ferli sem við nærum með því sem við höfum í kringum okkur og því sem við berum innra með okkur.

  • Handverkið snýst um að gefa sér tíma. Þegar við snertum leirinn og mótum hann, jarðtengjum við okkur. Það er ákveðin núvitund í því að skapa eitthvað sem má nota, finna fyrir og njóta í hversdeginum.

     

  • Hugverkið snýst um að skilja eigin líkama og taugakerfi. Við bjóðum upp á verkfæri sem hjálpa þér að þekkja muninn á „bensíngjöf“ og „bremsu“ lífsins, svo þú getir stigið af meiri öryggi inn í þitt daglega líf.

     

Fyrir hverja er Artrún?

Artrún er fyrir þig sem vilt mæta sjálfri þér af meiri mildi. Hvort sem þú leitar eftir fallegum hlut til að fegra heimilið, eða vilt dýpka skilning þinn á hormónum og taugakerfi, þá ertu velkomin í hringinn. Við leggjum áherslu á jafningjastuðning og trúnað, því við vitum að við lærum best þegar við lærum saman.

 

Stutt netnámskeið

Opnaðu á þann kraft sem býr innra með þér og finndu tilganginn þinn í gegnum námskeið um innri vegferð.

Þau veita þér dýrmæta innsýn og hagnýt verkfæri sem styrkja þig til að lifa meðvitað og með hjartanu.

Auglýst sérstaklega!

 

Spurningar og svör

Hvernig nýtist þessi þjónusta mér?

Hún getur m.a. hjálpað þér að endurskilgreina tilgang þinn í lífinu, ef þér finnst hann hafa breyst eða minnkað.

Sumir hafa ekki enn fundið ákveðinn tilgang eða ákveðna leið. Þú færð verkfæri og tillögur sem geta hjálpað þér að skilgreina þarfir þínar og markmið.

Einnig getur verið að það vanti bara aðeins meiri gleði og þá nýtast verkfærin og æfingarnar mjög vel.

Hversu lengi er hver einstaklingstími?

Hver tími er hugsaður sem 45 mínútur í senn. Það getur verið aðeins breytilegt eftir þörfum og vinnu hverju sinni.

Er hægt að fá sérsniðin námskeið fyrir hópa?

Já, hópar þurfa að vera að lágmarki 3 manneskjur. Samkomulag um stærri hópa og fjölda skipta.

Hversu margir tímar eru nauðsynlegir?

Það er mjög misjafnt. En það er mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að meta það. Fyrsti tíminn er notaður til að kynnast og skoða mögulegar útfærslur. Svo er í framhaldi hægt að ákveða t.d 1 tíma í einu eða festa nokkra fram í tímann. Þú stjórnar!

Hver er munurinn á þessu og sálfræðiþjónustu eða álíka?

Þetta kemur ekki í stað einstaklingsbundinnar meðferðar hjá sálfræðing eða fagmenntuðum aðila í heilbrigðiskerfinu.

Þetta er skuldbinding um að skoða nýja sýn á lífið og framtíðina. Stuðningur og fræðsla um leiðir og efni sem eru mjög vinsæl og hafa sýnt fram á mikinn árangur í sjálfshjálparvinnu og markmiðasetningu.

Er þetta dýrt?

Námskeiðin og markþjálfunin er ekki á sama verði. Hvort þetta sé dýrt fer eftir því hversu miklum tíma þú vilt eyða í þetta.

Fyrir markþjálfunina er best að bóka fyrsta tímann, sem er á sérstöku verði - 8000 kr., og fá frekari upplýsingar. Þú stjórnar svo í kjölfarið hversu mörg skipti þú vilt.

Fyrir námskeiðin er einfalt að kaupa sér grunnnámskeið sem er á sérstöku tilboðsverði líka, aðeins 19.000 kr. Grunnnámskeiðið er hugsað sem efni og verkefni fyrir 1 mánuð. 

 

Keramikið er handgert. Hver hlutur tekur marga daga í framleiðslu. Ekkert er fjöldaframleitt og því er hver hlutur stundum dýrari en fjöldaframleiddar vörur.

Hafðu samband

Ertu með spurningu/spurningar og finnur ekki svarið á síðunni?

Viltu bóka fyrsta tíma?

Fylltu út formið og það verður haft samband við þig. 

Um Ikigai með hjarta og huga

Ikigai með hjarta og huga er netþjálfun og ráðgjöf staðsett á Selfossi. Ég er menntuð m.a. sem kennari og Ikigai þjálfari og sæki innblástur og fræði í japanska visku, núvitund og sjálfsþekkingu. Með því styð ég einstaklinga til að opna á innri kraft, læra jafnvel nýja merkingu og stefnu og finna gleði í daglegu lífi.

Persónuleg nálgun og einlægur stuðningur.

Traustur félagi í bæði persónulegri og faglegri þróun.