Sjálfsstyrking og sjálfsvitund í gegnum breytingar

Með þessum námskeiðum munt þú öðlast betri innsýn yfir hvaða áhrif hormónabreytingar hafa á líkama okkar og líðan. Það er mismunandi eftir einstaklingum en margt er svipað og sameiginlegt að einhverju leyti. 

Ég kenni þér meðal annars að þekkja muninn á bensíngjöfinni og bremsunni í taugakerfinu þínu,

og leiðir til að ná betri tengingu við líkama þinn, t.d. með sjálfsmildi og skilningi.

Ekki bara sjálfsnám - stuðningur í boði

Einnig býðst þér jafningjastuðningur í lokuðum facebook hóp þar sem hægt er að deila reynslu og spyrja um allskonar sem tengist efni námskeiðsins.

 

Einu sinni í viku förum við svo yfir það efni sem hefur komið frá meðlimum og svörum fyrirspurnum eftir bestu getu.

Það er rík krafa um fullan trúnað í slíkum hóp og mikilvægt að koma fram af virðingu og með kærleik.

Hljóðskrár fylgja

Það sem fylgir er aðgangur að vefsvæði með fræðslu og verkefnum. Þú hefur líka möguleika á að hlusta á efnið. 

Verkefnin eru ekki hugsuð til að skila inn, heldur til að fara í gegnum á eigin hraða. Það er gott að skoða verkefnin aftur í lokin og sjá hvort einvher svör hafi breyst.

Í lok hvers kafla/lotu er slökun á sér hljóðskrá.

 

Frítt efni - viltu prófa?

Ef þú ert ekki alveg viss um hvort efnið eigi við um þig, þá getur þú prófað að fara í gegnum stutta slökun og skoðað frían gátlista til að merkja við líkamleg og tilfinningaleg einkenni sem þú finnur fyrir. Skráðu netfang hér fyrir neðan og ég sendi þér listann og hljóðskrá.

Skrifaðu "Frítt efni" í skilaboðin.

Ég fékk mjög góða hvatningu og leiðsögn sem ég gat sannarlega nýtt mér í daglegu lífi og starfi. Mér finnst ég hafa öðlast skýrarari framtíðarsýn og sjálfstraust til að elta hana.

Mæli hiklaust með!

[24.3.2025]