Leiðin þín
Ég vil styðja þig til að lifa lífi sem þér þykir vænt um – lífi sem skiptir máli.
Þú getur valið um tvenns konar nálganir eða valið að blanda þeim saman. Hér að neðan eru nánari upplýsingar

Ikigai markþjálfun
Ikigai með hjarta og huga er markþjálfun þar sem er lagður metnaður í að styðja þig með þjálfun, verkfærum og innblæstri, svo þú getir mætt lífsins áskorunum með tilgangi og ástríðu. Við vinnum að því að skilgreina ástríður þínar og hvaða leiðir henta þér best í lífinu.

Kynverund kvenna
Kynverund getur haft mikil áhrif líkamlega og sálræna líðan. Vellíðan og öryggi eykur sjálfstraust og boðefnaflutning til líkamans. Daglegt líf og umhverfi okkar hefur mikil áhrif á hvernig við upplifum okkur sem kynveru og hvaða máli upplifun okkar skiptir.
Þær sem hafa upplifað miklar breytingar í lífi sínu eða á líkama sínum, upplifa líka oft miklar breytingar á kynverund sinni. Ef sú breyting er neikvæð getur það smitað til annarra þátta.
Það er hægt að gera margt til að ýta undir jákvæða eigin upplifun aftur, eða betrumbæta það sem fyrir var.
Að enduruppgötva kynverund sína er ekki kynferðisleg leið, þó það geti hjálpað eða stutt mjög mikið við upplifun í kynlífi.
Enduruppgötvun er mismunandi fyrir hverja manneskju og snýst meira um líkamsvitund, sjálfsþekkingu, sjálfsmildi og samþykki frekar en að fókusa á það sem snýr að kynlífi.
"Ég lærði heilmikið um sjálfa mig, hluti sem ég hafði kannski ýtt aðeins frá mér áður, sem ég græddi heilmikið á að læra á. Nú er ég mun öruggari í bæði framkomu og líðan"
“Ég fékk mjög góða hvatningu og leiðsögn sem ég gat sannarlega nýtt mér í daglegu lífi og starfi. Mér finnst ég hafa öðlast skýrarari framtíðarsýn og sjálfstraust til að elta hana.
Mæli hiklaust með!”
"Ég var óviss um hvert ég ætti að stefna vinnulega séð. Ég komst að því að ég hef frekar valið öruggt en það sem heillar mig. Nú er ég komin í nám og byrjuð að byggja upp framtíð sem ég hef ástríðu fyrir. Takk fyrir mig."

Skipulagið
Þegar þú hefur tekið um að panta tíma er ferðalagið byrjað. Við setjum niður tímasetningu sem hentar báðum aðilum og förum aðeins yfir fyrstu skref. Framhaldið ræðst svo af því hvaða leið þú velur. Hægt er að velja um staka tíma, einn í einu, eða að skuldbinda sig í nokkra tíma í einu. Það fer allt eftir því hversu mikla vinnu þú vilt leggja í þig og framtíð þína.
Saman getum við búið til áætlun en þú stýrir alltaf ferðinni.

Panta tíma
Náðu varanlegum breytingum og persónulegum vexti með einstaklingsmiðaðri þjálfun.
Þú færð persónulega leiðsögn og stuðning til að nálgast markmið þín og lifa í takt við tilgang þinn.
Bókaðu fyrsta tíma í gegnum formið hér að neðan.